Samstarfstækifæri í Kanada – Ísland og Yukon leita leiða til að virkja jarðhita
11.05.2025
Vel heppnuð ferð til Yukan í Kanada með Íslenska sendiráðinu
Í byrjun maí fór íslensk sendinefnd á vegum Orkuklasans og sendiráði Íslands í Kanada til Whitehorse í Yukon í Kanada til að kanna möguleika á samstarfi um þróun og nýtingu jarðhita í svæðinu. Heimsóknin var skipulögð í tengslum við Arctic Indigenous Investment Conference (AIIC) og leidd af Hlyni Guðjónssyni sendiherra Íslands í Kanada.
Sendinefndin tók á þátt á AIIC ráðstefnunni í málstofu undir yfirskriftinni „Bringing the Heat: How Iceland and Yukon's First Nations can work together to realize the territory’s geothermal potential“, þar sem fjallað var um tækifæri og lausnir í jarðhitanýtingu og hvernig megi nýta íslenska reynslu í nánu samstarfi við frumbyggjasamfélög Yukons.
Íslenska sendinefndin hitti ýmsa lykilaðila úr opinbera geiranum og þátttakendur AIIC, auk þess sem farið var í sérstaka heimsókn til Teslin, rúmlega tveimur klukkustundum utan Whitehorse.
Þar tók sendinefndin þátt í fundi með fulltrúum frá Teslin Tlingit Council og ræddi möguleg næstu skref í samstarfi.
Fulltrúar í sendinefndinni komu frá Iceland Drilling , ÍSOR (Iceland Geosurvey), Verkis Consulting og Grænvangi
Sendiráð Íslands þakkar Orkuklasanum, stjórn Yukons, Teslin Tlingit Council, Yukon First Nation Chamber of Commerce og Yukon Energy Corporation fyrir gott og árangursríkt samstarf við undirbúning og framkvæmd heimsóknarinnar.