Brimborg gengur til liðs við Orkuklasann

Brimborg gengur til liðs við Orkuklasans

Nýr aðili Orkuklasans í desember er Brimborg

Nú í desember bættist enn einn öflugur aðildarfélagi til liðs við Orkuklasann, en það er Brimborg.

Brimborg er einn af leiðandi félögum á bifreiðamarkaði og lætur sig alla þætti virðiskeðju orkuskiptanna varða. Brimborg hefur sem dæmi hafið sína eigin orkuframleiðslu með sólarpanelum svo fátt eitt sé nefnt.

Við bjóðum Brimborg velkomna í hóp öflugra aðildarfélaga Orkuklasans og hlökkum til samstarfsins.
Saman erum við sterkari.